Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi. Tímabundinn búferlaflutningur ekki talin gild ástæða starfsloka. Staðfest.
Nr. 19 - 2004

 

 

Úrskurður

 

Hinn 26. mars 2004 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 19/2004.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 15. desember 2003 umsókn X um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 8. desember 2003 um starfslok hennar hjá Ú hf. var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.   

 

2.

 

X kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 8. mars 2004.  Í bréfinu segist hún hafa sagt upp starfi sínu hjá Ú í nóvember 2003 vegna flutnings suður til Hafnarfjarðar.  Þann 1. desember hafi hún flutt suður og fengið sér íbúð á leigu.  Hún sótti strax um atvinnuleysisbætur, en var sett á 40 daga bið vegna þess að hún sagði sjálf upp vinnunni á Akureyri.  Hún hafi verið að flytja milli landshluta og hafi því talið að hún ætti rétt á atvinnuleysisbótum á meðan hún væri að leita sér að vinnu fyrir sunnan.  Þann 1. febrúar 2004 hafi hún síðan flutt  aftur norður á Akureyri vegna þess að hún hafi ekki getað leigt íbúð á meðan hún fékk engar atvinnuleysisbætur.  Nú sé hún hinsvegar komin á bætur, en óskar þess að fá þessa 40 daga greidda.  Henni finnst óréttlátt að hafa ekki fengið aðlögunartíma og tækifæri til að koma sér og barni sínu fyrir er hún flutti suður.

 

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

 

2.

 

Atvik í einstökum málum geta verið með þeim hætti að launþega hafi verið rétt eftir atvikum að segja starfi sínu lausu án þess að það valdi missi bótaréttar skv. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.  Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta getar búferlaflutningar milli landshluta fallið undir slík atvik.  Fram hefur komið að kærandi sagði starfi sínu lausu vegna þess að hún var að flytja búferlum með barni sínu á milli landshluta, eða frá Akureyri til Hafnarfjarðar, en fram kemur einnig að tveimur mánuðum síðar flytur hún aftur til Akureyrar. Að mati úrskurðarnefndar sagði kærandi því upp starfi sínu án gildra ástæðna.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 15. desember 2003 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga skv. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysisbætur, staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Linda Bentsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni