Hópuppsagnir í maí
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í maí þar sem 53 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í maí þar sem 53 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Í sumar, frá og með 5. júní verður símatími atvinnuleyfa sem hér segir:
Mánudagar 10:00-11:00
Miðvikudagar 10:00-11:00
Bent er á að hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið atvinnuleyfi@vmst.is og workpermits@vmst.is
Vinnumálastofnun hefur samið við Advania um margvíslegt samstarf á sviði upplýsingatækni. Advania aðstoðar við að efla stafræna þjónustu Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofunar og Ægir Már Þórisson forstjóri Advania undirrituðu rammasamning um samstarfið í gær.
Í honum felst að Vinnumálastofnun heldur áfram nánu samstarfi við Advania meðal annars um hugbúnaðaþróun, vefsmíði, viðskiptagreind og hýsingu lausna. Fyrirtækið kemur að innri og ytri vefjum stofnunarinnar, hýsir og rekur upplýsingakerfi og ýmis sértæk kerfi svo sem fyrir Fæðingarorlofssjóð og Ábyrgðasjóð launa.
„Það er gaman að sjá gott samstarf leiða til hagræðingar og skilvirkni hjá Vinnumálastofnun. Þar hefur upplýsingatæknin leyst af hólmi handvirka og tímafreka ferla og stutt stofnunina í að veita betri þjónustu,“ segir Sigrún Ámundadóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna Advania.
„Vinnumálastofnun hefur lagt síaukna áherslu á stafræna þjónustu og er traust samstarf við upplýsingatæknifyrirtæki, grunnur að góðri afurð. Að gera ferlana stafræna styður við gildi Vinnumálastofnunar sem eru; fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki,“ segir Margrét Kr. Gunnarsdóttir sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun.
Advania hefur unnið með Vinnumálastofnun að stafrænni umbreytingu undanfarin ár. Í fyrra varð fyrirtækið hlutskarpast í útboði Ríkiskaupa um smíði á nýju grunnkerfi um stóran hluta þjónustu Vinnumálastofnunnar. Kerfið er hannað með það að leiðarljósi að spara atvinnulausum sporin, flýta afgreiðslu atvinnuleysisbóta og draga úr tímafrekri pappírsvinnu starfsfólks.
Vegna viðhalds á tölvukerfi Vinnumálastofnunar gætu orðið truflanir á þjónustusíðum Vinnumálastofnunar eftir kl 15:00 í dag, miðvikudaginn 29.05.2019. Áætlað er að aðgerðin taki um 4 klukkustundir.
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað þann 17.maí og fengu 29 verkefni styrki að upphæð kr. 40.000 milljónir. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra afhenti styrkina í athöfn sem fór fram í Hörpu.
Skráð atvinnuleysi í apríl mældist 3,7% og voru að jafnaði 6.803 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í apríl.
Að meðaltali fjölgaði atvinnulausum um 841 á atvinnuleysisskrá frá mars eða um 0,5 prósentustig.
Í fréttum í síðustu viku var haft eftir öðrum skiptastjóra WOW air að greiðslur á launakröfum fyrrum starfsfólks WOW sem Ábyrgðasjóður launa ábyrgist muni berast seinni part júlímánaðar. Í ljósi þessa telur Vinnumálastofnun rétt að koma því á framfæri að umræddar greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa munu í fyrsta lagi eiga sér stað með haustinu og jafnvel ekki fyrr en undir áramót. Um er að ræða eitt umfangsmesta þrotabú sem Ábyrgðasjóður launa hefur fengið til meðferðar og er því fyrirséð að það muni taka nokkurn tíma að afgreiða þær kröfur sem berast sem og að önnur þrotabú eru einnig til afgreiðslu hjá sjóðnum.
Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í apríl.
Skráð atvinnuleysi í mars mældist 3,2% og voru að jafnaði 5.962 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Að meðaltali fjölgaði atvinnulausum um 272 á atvinnuleysisskrá frá febrúar.
Tollstjóri, Samgöngustofa, Vinnumálastofnun, ríkisskattstjóri og Lögreglustjórinn á Austurlandi munu standa fyrir sameiginlegri eftirlitsaðgerð við komu farþegaferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðarhafnar 16. apríl nk.
Sex tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í mars þar sem 473 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Vinnumálastofnun og BHM eru með samstarfsverkefni sem miðar að því að vekja athygli á nauðsyn þess að allir fái tækifæri til að taka þátt í atvinnulífinu og nýti hæfileika sína, menntun og styrk. Með verkefninu vilja þau beina því til stofnana, sveitarfélaga og fyrirtækja hvort þau sumarstörf, eða tímabundnu verkefni sem falla til á þeirra vegum gætu ekki staðið þessum atvinnuleitendum til boða.
Þú hefur skoðað 36 fréttir af 40