Öryggisstefna Vinnumálastofnunar
- VMST rekur upplýsingakerfi á öruggan hátt með því markmiði að skila lögbundnu hlutverki sínu og tryggja eftir því sem við á að upplýsingar séu réttar, tiltækar og að trúnaðar sé gætt.
- Öryggisstefnan tekur til allrar starfsemi VMST.
- Öllu starfsfólki og samstarfsaðilum VMST er skylt að fara eftir þessari stefnu, stuðla að því að stefnan sé virt af öðrum og koma með ábendingar um öryggisfrávik þegar við á.
- VMST tryggir þekkingu á stefnunni og upplýsingaöryggi með því að hafa hana aðgengilega og veita fræðslu.
- Stjórn upplýsingatæknimála miðar að uppfyllingu laga um starfsemi og skyldur VMST og ákvæða í lögum um persónuvernd. Til að ná þessum markmiðum mun VMST starfrækja formlegt áhættustjórnunarferli sem byggt er á ISO/IEC 27005:2011 auk þess að líta til ISO/IEC 27001/2013 um stjórnkerfi upplýsingaöryggis og til ISO/IEC 27002/2013 um starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis.
- Nánari lýsingar á útfærslu stefnunnar eru í skjölunum „Áhættustjórnunarferli upplýsingatækni“ og „Stjórnkerfi upplýsingaöryggis“.
- Öryggisstjóri upplýsingatækni ber ábyrgð á því að stefnunni sé fylgt.
- Forstjóri VMST ber ábyrgð á stefnunni og endurskoðar hana eftir því sem tilefni er til á tveggja ára fresti.