Opnunartími Vinnumálastofnunnar yfir hátíðarnar
Vinnumálastofnun óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs ár.
Vinnumálastofnun óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs ár.
Skráð atvinnuleysi í nóvember mældist 4,1% og jókst um 0,3 prósentustig frá október.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nóvember þar sem 50 starfsmönnum var sagt upp störfum, 27 í mannvirkjagerð og 23 í framleiðslu. Flestar uppsagnirnar taka gildi á tímabilinu mars til júní 2020.
Félags- og barnamálaráðherra hefur sett reglugerð um greiðslu desemberuppbótar úr atvinnuleysistryggingasjóði.
Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2019 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember. Óskert desemberuppbót er 83.916.- kr.
Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en nemur 20.979.- kr.
Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum 4% af óskertri desemberuppbót sem eru rúmar 3.357.- kr. fyrir hvert barn.
Gert er ráð fyrir að desemberuppbætur verði greiddar út eigi síðar en 15. desember.
Smelltu hér til að nálgast reglugerðina.
Skráð atvinnuleysi í október mældist 3,8% og jókst um 0,3 prósentustig frá september.
fimmtudaginn 7.nóvember verður haldin norræn ráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík undir yfirskriftinni The Working conditions of tomorrow- nýjar áskoranir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfinu.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í október þar sem 55 starfsmönnum var sagt upp störfum, 45 í byggingariðnaði þar af 25 á höfuðborgarsvæðinu og 20 á Norðurlandi eystra og 10 í framleiðslu. Flestar uppsagnirnar taka gildi á tímabilinu desember 2019 til febrúar 2020.
EURES evrópsk vinnumiðlun, Info Norden og Rannís boða til hádegisfundar þriðjudaginn 5. nóvember þar sem starfsemi okkar verður kynnt fyrir gestum. Við eigum það sameiginlegt aðsinna upplýsingagjöf til almennings varðandi flutning, atvinnuleit og nám á Norðurlöndunum.
Ert þú á aldrinum 20-29 ára og hefur áhuga á nýsköpun og vilt tileinka þér skapandi hugsun? FEENIICS er evrópuverkefni sem miðar að því að efla nýskapandi hugsun hjá ungu fólki og stendur fyrir spennandi námskeiði sem ber yfirskriftina Nýsköpunar hugsun og virkni í starfi. Smelltu hér til að nálgast nánari upplýsingar um námskeiðið.
Fimmtudaginn 7.nóvember verður haldin norræn ráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík undir yfirskriftinni The Working conditions of tomorrow- nýjar áskoranir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfinu.
Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í september þar sem 234 starfsmönnum var sagt upp störfum, 102 í fjármálastarfsemi, 87 í flutningum og 45 í fiskvinnslu. Flestar uppsagnirnar taka gildi á tímabilinu nóvember 2019 til maí 2020.
Þú hefur skoðað 12 fréttir af 40